LEITA
Gufunesi    112 Reykjavík    Sími  520 2200    Fax  520 2209    fenur@fenur.is
Aðalfundur FENÚR 2010 og ráðstefna.
Aðalfundur félagsins var haldinn þann 16. apríl sl. Í framhaldi af aðalfundi efndi FENÚR til ráðstefnu að vanda, nú undir formerkjunum "'Úrgangsstjórnun. Hvar erum við? Hvert stefnum við?

Erindi sem flutt voru á ráðstefnunni má finna hér að neðan.

Árangur af innleiðingu úrgangsstjórnunar - Actavis

Aðgerðaráætlun í loftslagsmálum og meðferð úrgangs - Umhverfisráðuneytið

Söfnun og ráðstöfun raf- og rafeindatækjaúrgangs (RRÚ) - RR-skil

Umsýsla, þróun og eftirfylgni í úrgangsmálum - Umhverfisstofnun
FENÚR FRÉTTIR - Nýtt tölublað

FENÚR fréttir er komið út og hefur blaðið verið sent á alla félaga FENÚR sem og ýmsa aðra hagsmunaaðila. Að þessu sinni er fjallað um Aðalfund FENÚR, svansmerkið, vistvæn innkaup, skilvirka úrgangsstjórnun og fleira fróðlegt og skemmtilegt.

Hér má lesa nýjasta tölublaðið. 

ISWA heimsráðstefna í Hamborg 2010 
From the 15th to the 18th of November 2010 the City of Hamburg will host the ISWA World Congress 2010 on Urban Development and Sustainability.

It is a unique possibility to participate in an international forum where outstanding experts in the different fields of Research and Practice will present and discuss the different aspects of a sustainable development in our urbanized world. In several parallel sessions the participants have the opportunity to hear about the latest developments not only on waste management, but on all aspects related to urban development. From technical innovations in the handling and treatment of the different fractions of waste to urban mining, the social aspects of waste generation and the impact of the different aspects of waste on a sustainable development in the cities. There will be the opportunity to visit different waste treatment plants (from sorting facilities to energy production) located in or near Hamburg.

Frekari upplýsingar um ráðstefnuna er að finna á heimasíðu ISWA

Breytt gjaldskrá flokkunarmerkja
Stjórn Fenúr hefur haft gjaldskrá flokkunarmerkja félagsins til endurskoðunar en FENÚR hefur verið að skipta við nýjan aðila vegna prentunar merkjanna. Í ljósi þeirra verða sem FENÚR greiðir fyrir prentun merkjanna, ákvað stjórn FENÚR eftirfarandi gjaldskrá fyrir flokkunarmerkin.

A5 merkin kosta nú 149 m/vsk, var á 348 m/vsk
A4 merkin kosta nú 299 m/vsk var á 392,18 m/vsk
A3 merkin kosta nú 448 m/vsk var á 435,78 m/vsk

Verðskrá FENÚR flokkunarmerkjanna hefur verið einfölduð og lækkuð eins og sjá má í samaburði kostnaðar, þar sem forsendur hafa breyst við prentun merkjanna. Ekki þarf lengur að panta ákveðinn fjölda merkja heldur er lagt upp með það hversu mörg merki passa á hvern fermetra af prentfleti. Stjórn FENÚR þakkar viðskipti með merkin undanfarin ár og vonar að þessi nýja verðskrá leggist vel í félagsmenn og aðra viðskipta.
Sjá verðskrá
Heim Veftré Hafðu samband Til bakaUpp